Stofnunin
Rannsóknastofnun Ármanns Snævarr er vísindaleg rannsóknastofnun starfrækt af Háskóla Íslands. Stofnunin sinnir auk rannsókna, fræðslu og þjónustu.
Stofnunin er vettvangur fyrir lögfræðirannsóknir og þróunarstarf í málefnum fjölskyldna og barna í þverfaglegu samstarfi við önnur fræðasvið og rannsóknastofnanir sem fjalla um fjölskyldumálefni.
Megináherslur hennar eru á lögfræði og frá sjónarhorni hennar er efnt til samstarfsverkefna.
Hér er hægt að skrá sig á tölvupóstlista okkar og fá fréttir á vegum Rannsóknastofnunar Ármanns Snævarr.
Image