Almennt yfirlit og stjórn
Í stjórn stofnunarinnar til september árið 2015 sátu: Hrefna Friðriksdóttir frá Lagadeild, formaður, Erla Kolbrún Svavarsdóttir frá Heilbrigðisvísindasviði, Gunnar E. Finnbogason frá Menntavísindasviði, Sigrún Júlíusdóttir frá Félagsráðgjafardeild og Vilhjálmur Árnason frá Hugvísindasviði.
Ný stjórn var skipuð í september og í henni sitja: Hrefna Friðriksdóttir frá Lagadeild, formaður, Vilhjálmur Árnason frá Hugvísindasviði, Jörgen Leonhard Pind frá Sálfræðideild Heilbrigðisvísindasviðs, Annadís Gréta Rudolfsdóttir frá Menntavísindasviði og Sigurveig H. Sigurðardóttir frá Félagsráðgjafardeild Félagsvísindasviðs.
Forstöðumaður í 50% starfi til 31. júlí var Þórhildur Líndal lögfræðingur, sem lét af störfum að eigin ósk.
Gengið var frá samningi RÁS og Lagastofnunar um að forstöðumaður Lagastofnunar taki að sér framkvæmdastjórn RÁS.
Rannsóknir
Áfram var unnið í rannsóknaverkefninu Staða barna innan heilbrigðiskerfisins – með áherslu á sjálfræði þeirra til þátttöku og ákvarðana í eigin málum. Stefnt er að því að ljúka verkinu í desember 2015.
Hrefna Friðriksdótir og Anni G. Haugen taka þátt í norrænu rannsóknarsamstarfi um Barnahús á Norðurlöndum. Stefnt er að útgáfu bókar árið 2016 þar sem Hrefna og Anni munu skrifa kafla byggðan á rannsókninni sem lá til grundvallar ritinu Kynferðisofbeldi gegn börnum. Málsmeðferð innan réttarkerfisins og réttarvernd barna sem kom út árið 2014. Hrefna Friðriksdóttir tók þátt í undirbúningsseminari sem haldið var í Svíþjóð í október.
Námskeið
RÁS skipulagði námskeið um vinnubrögð barnaverndarstarfsmanna í kynferðisbrotamálum í samstarfi við Barnaverndarstofu. Kennarar voru Hrefna Friðriksdóttir og Anni G. Haugen og voru þátttakendur um 30 talsins.
Málstofur o.fl.
13. apríl |
Sexual Abuse and Child Friendly Justice: Challenges in Pracitce and Procedures |
BASPCAN Congress 2015: New directions in child protection and wellbeing: making a real difference to children´s lives. Hrefna Friðriksdóttir og Anni G. Haugen voru með erindi á málstofu byggt á ritinu Kynferðisofbeldi gegn börnum. Málsmeðferð innan réttarkerfisins og réttarvernd barna sem kom út árið 2014. |
|
2. september |
Tilgang til børn udsat for seksuelle overgreb |
Seminar í samstarfi við NFBO – Nordisk Forening mot barnemishandling og omsorgssvikt. Hrefna Friðriksdóttir hélt hálfsdagsseminar fyrir starfsmenn réttarkerfisins sem byggði á ritinu Kynferðisofbeldi gegn börnum. Málsmeðferð innan réttarkerfisins og réttarvernd barna sem kom út árið 2014. Þátttakendur voru um 50 talsins. |
|
11. nóvember |
Jöfn búseta barna sem búa á tveimur heimilum |
Nýlega kom út skýrsla starfshóps sem innanríkisráðherra skipaði í samræmi við Frumælandi: Rakel Þráinsdóttir, lögfræðingur hjá sýslumanninum á Suðurnesjum og starfsmaður starfshóps innanríkisráðherra. |
|